Kaldvík slátraði um 15.000 tonnum af laxi úr kvíum sínum á Austfjörðum á árinu 2024 og er það umtalsverð aukning frá árinu á undan þegar félagið slátraði um 4.400 tonnum. Þá námu tekjur ársins um 108 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 16 milljarða íslenskra króna.

Þetta kemur fram í uppgjöri Kaldvíkur vegna fjórða ársfjórðungs 2024.

Á fjórða ársfjórðungi var slátrað 6.668 tonnum, og námu tekjur félagsins tæplega 47 milljónum evra. Félagið greiddi 1,8 milljónir evra í eldisgjald á fjórðungnum og samtals 3,9 milljónir evra á árinu, sem jafngildir rúmlega 578 milljónum króna. Rekstrarhagnaður (EBIT), leiðréttur fyrir einskiptis niðurfærslu lífmassa, nam 5 milljónum evra á fjórða ársfjórðungi. Leiðréttur rekstrarhagnaður á hvert framleitt kíló var því 0,76 evrur.

Fyrirtækið áætlar að slátra um 5.500 tonnum á fyrsta ársfjórðungi 2025, en gert er ráð fyrir að ársframleiðsla þess verði 21.500 tonn. Til lengri tíma er markmið fyrirtækisins að auka árlega framleiðslu í 30.000 tonn. Félagið hefur nú leyfi til framleiðslu á tæplega 44.000 tonnum.

Niðurfærsla upp á 23,1 milljón Evra

Félagið færði niðurfærslu á lífmassa upp á 23,1 miljón Evra, jafnvirði ríflega 3,3 milljarða íslenskra króna.

„Seiðaútsetning fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi gekk ekki eins og áætlað var, aðallega vegna óvenju lágs sjávarhita ásamt ófyrirséðu atviki í flutningi. Lágur sjávarhiti hafði einnig neikvæð áhrif á aðrar staðsetningar fyrirtækisins, og olli auknum dauði fiska,“ segir Róbert Róbertsson fjármálastjóri Kaldvíkur.

Róbert Róbertsson fjármálastjóri Kaldvíkur.
Róbert Róbertsson fjármálastjóri Kaldvíkur.

Óvenju lágt hitastig sjávar á fjórða ársfjórðungi 2024 og fyrsta ársfjórðungi þessa árs hefur leitt til aukinna vetrarsára og hærri dánartíðni.

„Þessi aukna dánartíðni í fjórða ársfjórðungi og vænt dánartíðni fyrsta ársfjórðungi er hluti af niðurfærslunni og endurspeglast í tölum fyrir árið 2024,“ segir Róbert.

Fyrirhuguð kaup á Kassaverksmiðju

Viðræður um kaup á lykileignum í virðiskeðju Kaldvíkur eru enn í gangi, þar er um að ræða kassaverksmiðja og þriðjung af sláturhúsinu Búlandstindi ehf., en félagið á í dag 67% af sláturhúsinu.

Samkvæmt Róberti er markmið þessara viðskipta að styrkja starfsemi á svæðinu og auka hagkvæmni í framleiðsluferlinu.

„Við vonumst eftir töluverðum ávinningi fyrir Kaldvík með þessum viðskiptum þar sem við áætlum að umbúðakostnaður minnki um u.þ.b. 3 milljónir evra árlega, miðað við 20.000 tonna framleiðslu. Þessi vænti ávinningur mun síðan aukast með aukinni framleiðslu hjá Kaldvík.“

Áætlað kaupverð fyrir kassaverksmiðjuna og eftirstandandi hlut í Búlandstindi nemur 190 milljónum norskra króna, jafnvirði 2,3 milljarða íslenskra króna. Gert er ráð fyrir að kaupin gangi í gegn á fyrsta ársfjórðungi 2025.

Leyfi í Seyðisfirði

Nýja leyfið í Seyðisfirði felur í sér 10.000 tonna hámarks leyfilegan lífmassa (MAB). Þetta skiptist í 6.500 tonn MAB fyrir frjóan fisk og 3.500 tonn MAB fyrir ófrjóan fisk.

„Þetta er búið að taka töluverðan tíma, en við hófum umsóknarferlið árið 2016. Það var svo núna í desember sem drög að leyfum voru auglýst og nú er MAST og UST að fara yfir þær umsagnir sem bárust og við búumst við að leyfið verði gefið út á öðrum ársfjórðungi þessa árs.“

Endurfjármögnun

Kaldvík er jafnframt í viðræðum við lánveitendur sína um endurfjármögnun á fjármálauppbyggingu fyrirtækisins. Viðræðurnar eru enn í gangi, og er markmiðið að tryggja hagkvæmari og stöðugri fjármögnun til framtíðar.

„Í ljósi þess að núverandi sambankalán rennur út í apríl á næsta ári, þá hefur Kaldvík hafið viðræður við lánveitendur. Við stefnum á að ljúka endurfjármögnun fyrir lok annars árfjórðungs þessa árs.“