Laxeldisfélagið Kaldvík AS hefur lokið við umfangsmikla endurfjármögnun sem felur í sér nýja lánsfjármögnun og hlutafjáraukningu. Markmið endurfjármögnunarinnar er að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og styðja við áframhaldandi vöxt og fjárfestingar.

„Við náðum samkomulagi við lánveitendur okkar í lok maí sem tryggði félaginu ríflega 33 milljarða króna lánsfjármögnun til 4 ára. Lánsfjármögnunin er í formi sambankaláns sem fjórir bankar koma að DNB, Nordea, Arion Banki og Landsbankinn,“ segir Róbert Róbertsson, fjármálastjóri Kaldvíkur í fréttatilkynningu sem félagið hefur sent frá sér.

Samhliða endurfjármögnunni vann Kaldvík að aukningu hlutafjár félagsins sem tryggði félaginu 6,6 milljarða króna. Hlutafjáraukningin naut öflugs stuðnings frá meirihlutaeiganda félagsins, Austur Holding AS, og styrkir eiginfjárstöðu félagsins verulega. Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2025 sýnir sterkan rekstur.

Áætluð framleiðsla 2025 21.500 tonn

Rekstrarniðurstaða fyrsta ársfjórðungs var umfram væntingar félagsins. Rekstrartekjur námu 48,4 milljónum evra, sem er 56% aukning frá sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) þrefaldaðist í ársfjórðungnum samanborið við fyrsta ársfjórðung síðata árs og nam 9,8 milljónir evra, samanborið við 2,4 milljónir evra árið áður. Rekstrarhagnaður á hvert kíló (EBIT/KG) nam 1,54 evrum og meðalverð var 7,44 evrur á kíló. Uppskera á tímabilinu nam 6.383 tonnum, sem er ríflega 60% aukning frá 3.986 tonnum á fyrsta ársfjórðungi 2024. Félagið áætlar að framleiðsla 2025 nemi um 21.500 tonn og stefnir að því að sleppa 7,5 milljónum seiða á árinu 2025 til að stuðla að áframhaldandi vexti.

Róbert Róbertsson, fjármálastjóri Kaldvíkur.
Róbert Róbertsson, fjármálastjóri Kaldvíkur.

Leyfisveitingar og framtíðaráform

Í lok fyrsta ársfjórðungs lauk Kaldvík við kaup á kassaverksmiðju og eignaðist að fullu sláturstöðina Búlandstind. Félagið bíður nú eftir afgreiðslu rekstrarleyfis fyrir nýtt eldissvæði í Seyðisfirði. Kaldvík hefur nú leyfi til framleiðslu á samtals 43.800 tonnum. Róbert segir að nýlegar fjárfestingar hafa styrkt virðiskeðju félagsins. Kaup félagsins á nýrri kassaverksmiðju á Djúpavogi, ásamt auknum hlut í vinnslu- og sláturhúsum, eru talin skila fyrirtækinu árlegum sparnaði upp á 3 milljónir evra (um 0,14 evrur á hvert kíló). Með þessu eykst sveigjanleiki og hagræðing í allri virðiskeðjunni.

„Við höfum lagt í miklar fjárfestingar í innviðum félagsins síðustu ár með það að markmiði að tryggja stöðuga 30.000 tonna framleiðslu árlega. Í dag standa innviðir félagsins undir 30.000 tonna framleiðslu árlega. Það er því mikilvægt fyrir okkur að nýta þessa framleiðslugetu til að ná fram stærðarhagkvæmni og meiri samkeppnishæfni í framleiðslukostnaði,“ segir Róbert og bætir við að þetta yfirlýsta markmið félagsins sé innan seilingar á næstu árum.