Jólasíld Síldarvinnslunnar er orðin ómissandi hluti jólahátíðarinnar hjá starfsmönnum og velunnurum fyrirtækisins. Að mati flestra sem hafa smakkað jólasíldina kemst engin önnur síld í hálfkvisti við hana, segir á vef SVN.
Það er Haraldur Jörgensen eða Halli Kalla Jör sem stjórnað hefur framleiðslu jólasíldarinnar um áratuga skeið og hefur hann notið aðstoðar reyndra manna á borð við Jón Gunnar Sigurjónsson yfirverkstjóra fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar. Síldin er framleidd í takmörkuðu magni ár hvert og einungis ætluð til að gleðja og seðja starfsmennina og þá sem eru í mestum tengslum við fyrirtækið.
Að sjálfsögðu eru þær aðferðir sem notaðar eru við framleiðslu síldarinnar leyndarmál en þó er greint í grófum dráttum frá framleiðsluferlinum. Allt byrjar þetta á því að gæðasíld er skorin í hæfilega bita en það er gert um 10. október ár hvert. Þegar skurði er lokið er síldin sett í kör með saltpækli og þar er hún höfð í um það bil einn sólarhring. Þá er hún tekin úr körunum og sett í tunnur þar sem hún liggur í ediki í ákveðinn tíma. Loks er hún látin liggja í sykurlegi og er magn sykursins algert lykilatriði varðandi það hvernig til tekst. Lokaþáttur framleiðsluferilsins felst í því að síldin er tekin úr sykurleginum og sett í fötur ásamt lauk og tilheyrandi kryddi. Þegar síldin hefur legið í fötunum í nokkra daga er hún tilbúin til neyslu.
Sjá nánar á vef Síldarvinnslunnar.