Áhöfnin á Þórunni Sveinsdóttur var södd og sæl eftir jólahlaðborðið sem Sigmundur Rúnar Rafnson afleysingakokkur hristi fram úr erminni um helgina. Skipið kom í land í morgun með tæp 500 kör af fiski.

„Hvort það sé hefð fyrir því að halda jólahlaðborð þá er alltaf eitthvað jólalegt í matinn fyrir jólin en ekkert eiginlegt jólahlaðborð. Svo er mikið af jólaskrauti sem er í höndunum á Kristjáni Gunnarssyni (jóla drengurinn) sem skreytir af mikilli fágun.” segir Sigmundur Rúnar spurður um hvort það sé löng hefð fyrir slíkum hlaðborðum um borð í Þórunni.

„Það sem boðið var upp á var hangikjöt, þrjár tegundir af síld og rúgbrauð og brauðterta. Í eftirrétt var frönsk súkkulaðiterta með jarðarberjum, bláberjum og rjóma, lagterta, súkkulaði smákökur, sörur og brauðterta.”

Sigmundur segir fiskiríið hafa verið í góðu lagi. „Tæp 500 kör. Við byrjuðum fyrir sunnan Eyjar fórum svo vestur. Á Skötuhryggnum. Unnum okkur vestur af Tánni og áfram vestur á Dohrnbanka. Vorum þar að berjast við ís, eina sköfu í Nætursölunni og restina af túrnum við Blönku.“

Nánar má lesa um þetta á vef Vinnslustöðvarinnar.