Japansfrysting er hafin í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, að því er fram kemur á vef fyrirtækisins.
Hrognafylling loðnunnar er nægjanleg til að unnt sé að frysta hana fyrir Japansmarkað. Beitir NK kom í gær með 820 tonn af loðnu og er verið að frysta úr honum núna. Vilhelm Þorsteinsson EA kom í morgun með fullfermi af frystri loðnu.
Í nótt kom norska skipið Norderveg til Neskaupstaðar með 2300 tonn af kolmunna og er verið að landa úr því.