Svo til látlausar brælur á miðunum hafa sett stórt strik í reikninginn hjá togaraflotanum. Pálmi Gauti Hjörleifsson skipstjóri á Björgúlfi EA 312 segir í viðtali á heimasíðu Samherja , að veðrið í janúar og febrúar hafi verið með miklum ólíkindum og veðrið og veðurhorfur hafi í raun stjórnað því hvar sé veitt hverju sinni.

Þrátt fyrir ótíðina hefur tekist að halda úti starfsemi í vinnsluhúsunum á Dalvík og Akureyri frá 3.janúar, aldrei hefur þurft að fella niður vinnslu vegna skorts á hráefni.

Pálmi Gauti skipstjóri segir að oft á tíðum hafi þurft að gera hlé á veiðum vegna brælu, öryggi áhafnarinnar sé alltaf í fyrirrúmi. Hann segir að lægðirnar í vetur hafi verið óvenjulega stórar og djúpar og því lítið annað að gera en að bíða þær af sér.

Stór og öflug skip skipta öllu

„Það hafa verið brælur á öllum miðum, veðrið stjórnar einfaldlega veiðunum og hvar við erum hverju sinni. Björgúlfur er stórt og öflugt skip, sem hefur aldeilis komið sér vel í vetur og sýnir og sannar hversu nauðsynlegt það er fyrir okkur Íslendinga að hafa á að skipa öflugum flota, sem auk þess fer vel með mannskapinn í svona veðrum. Á svona skipi eins og Björgúlfi er það ekki veltingurinn sem stjórnar því hvenær við þurfum að hætta veiðum vegna veðurs, heldur skynsemin. Það er ekki viturlegt að vera að í miklum og mjög vondum veðrum, því ef eitthvað kemur upp á, má segja að öll vandamál margfaldist og hættan sem mannskapurinn er settur í við störf sín á dekkinu magnast. Þá skiptir öllu máli að vera á góðu og traustu skipi og bíða af sér veðrið, það er bara þannig. Þessi nýju og stóru skip eru bylting frá þeim skipum sem þau leystu af hólmi, ég tel að öryggi og aðbúnaður manna hafi stóraukist við þessar fjárfestingar. Þetta atriði hefur ekki fengið nægt vægi í allri umræðunni um sjávarútveg.“

Veðrið stjórnar hvar veitt er

„Þessi túr sem við erum í núna er á margan hátt dæmigerður. Við byrjuðum að kasta fyrir norðan og sigldum fljótlega austur á bóginn vegna þess að veðrið er hagstæðra, hérna erum við í blönduðum tegundum. Þegar við erum að undirbúa veiðiferð er veðurspáin það fyrsta sem er þarf að skoða og gaumgæfa. Staðan er einfaldlega sú að þessar vikurnar og mánuðina velur maður sér veiðisvæði eftir veðurspám.“

Hér má lesa umfjöllunina í heild sinni.