Íslenskt sjávarfang í Kópavogi mun hefja fiskvinnslu á Þingeyri nú í vikunni, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum.
Íslenskt sjávarfang í Kópavogi byrjaði sem lítið fiskvinnslufyrirtæki sem sinnti eingöngu innanlandsmarkaði en fór síðan í útflutning. Nú er fyrirtækið með stærri framleiðendum á ferskum fiski.
Árið 2011 var fjöldi starfsmanna Íslensks sjávarfangs kominn í um 100 manns. Fyrirtækið hefur unnið úr 7 til 9 þúsund tonnum af hráefni síðastliðin ár. Velta þess hefur verið milli 3 og 4 milljarðar á ári.
Sjá nánar umfjöllun í nýjustu Fiskifréttum.