Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, átti fund í Reykjavík með Ni Yuefeng, tollamálaráðherra Kína, þann 26. maí síðastliðinn. Á fundinum ræddu þeir m.a. samband ríkjanna, árangur og tækifærin sem felast í fríverslunarsamningnum sem tók gildi árið 2014.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kom því á framfæri að íslensk fyrirtæki binda miklar vonir við tækifæri á kínverskum markaði með sjávarútvegs- og landbúnaðarafurðir auk tækni og þekkingar. Ráðherra lagði áherslu á einföldun ferlis kínverskra yfirvalda á úttekt á heilbrigðisreglum hér á landi.
Kínverski ráðherran var staddur hér á landi ásamt sendinefnd vegna undirritunar á þremur nýjum bókunum við fríverslunarsamning Íslands og Kína. Bókanirnar varða viðurkenningu á heilbrigðisstöðlum fyrir fiskeldisafurðir, fiskimjöl og lýsi, ull og gærur.
Þær eru afrakstur samstarfs Matvælastofnunar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins við yfirvöld tolla- og dýraheilbrigðismála í Kína, með það að markmiði að opna markaði fyrir íslenskar afurðir. Einnig var undirritað samkomulag um eflingu samstarfs á sviði heilbrigðiseftirlits.