Í greiningu sjávarútvegsteymis Íslandsbanka kemur fram að útflutningsverðmæti sjávarafurða muni hækka um 16 milljarða króna á þessu ári frá því síðasta og um fjóra milljarða króna til viðbótar á árinu 2012. Aukningin nemur því um 9% og mun hafa jákvæð áhrif á þjóðarbúið. Aukningin er tilkomin vegna aukinna aflaheimilda, og þá aðallega í þorski, alþjóðlegum verðhækkunum á fiski og stöðugri krónu.


,,
Eftirspurn eftir fiskafurðum hefur aukist talsvert á alþjóðamörkuðum og er talið að hún eigi eftir að halda áfram að vaxa á næstu árum, m.a. vegna fólksfjölgunar, auknum tekjum í þróunarríkjum og aukinni áherslu á heilbrigðara líferni,” segir í greiningu Íslandsbanka. Samkvæmt vísitölu sjávarafurða sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn  reiknar mun alþjóðlegt fiskverð hækka töluvert á þessu ári og hafi ekki verið hærra frá árinu 1988. Að auki telja greiningaraðilar að íslenska krónan haldist tiltölulega stöðug á næstunni.  Þá jók sjávarútvegsráðherra heildarafla þorsks um 10% fyrir árið 2011/2012 en þorskurinn er rúmlega 1/3 af heildarverðmæti sjávarafurða.

Sjá nánar á vef Íslandsbanka.