Íslensk skip mega veiða 8.121 tonn af þorski í rússneskri lögsögu á árinu 2017, þar af eru 5.075 tonnum úthlutað beint. Meðaflaheimild í ýsu nema samtals 711 tonnum. Meðaflaheimild í öðrum tegundum er líkt og áður 30% af aflaheimildum í þorski að frádregnum 711 tonnum af ýsu.
Eftir er að semja um verð og meðaflaheimildir vegna 3.046 tonna sem íslenskar útgerðir hafa rétt til að kaupa af Rússum. Rússar lýstu jafnframt yfir vilja til að endurskoða forsendur samningsins.
Þetta varð niðurstaða fundar fiskveiðinefnda Íslands og Rússlands um samstarf á sviði sjávarútvegsmála sem var haldinn í Reykjavík í síðustu viku.
Á fundinum lagði Ísland áherslu á mikilvægi þess að Rússar verði aðilar að samkomulagi um stjórnun úthafskarfaveiða á Reykjaneshrygg.
Þetta kemur fram á vef atvinnuvegaráðuneytisins.