Aflaverðmæti á Íslandi nemur sem svarar 468 þúsund krónum á hvert mannsbarn og í Færeyjum er fjárhæðin 1,1 milljón íslenskra króna. Í öðrum löndum við Norðaustur-Atlantshaf eru samsvarandi tölur mjög lágar. Tölurnar miðast við árið 2015.
Þetta kemur fram í samantekt sem Fiskifréttir hafa gert og birtist í síðasta tölublaði þeirra. Aflaverðmæti á hvern íbúa í Noregi er 46.000 ISK, í Danmörku og á Írlandi 10.000 ISK í hvoru landi og í Bretlandi aðeins 2.000 ISK.
Aflaverðmæti á hvern fiskimann er hæst á Íslandi eða 36,8 milljónir á síðasta ári, í Færeyjum er talan 36 milljónir ISK, í Noregi rúmar 26 milljónir ISK og á bilinu 9-13 milljónir ISK í hinum löndunum.
Sjá nánar í Fiskifréttum.