Ísland hefur fullgilt samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) númer 186 um vinnuskilyrði farmanna. Í samþykktinni, sem er frá 2006, er meðal annars fjallað um þær lágmarkskröfur sem þarf að uppfylla til að sjómenn megi vinna um borð í skipum, vistarverur þeirra, heilsuvernd, velferð og almannatryggingar.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, afhenti í dag Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunar, skjal til staðfestingar á fullgildingunni. Guy Ryder er staddur hér á landi í tengslum við norræna ráðstefnu um framtíðarskipan vinnumála og breytingar á vinnumarkaði sem haldin er í Hörpu í tilefni af aldarafmæli Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.

Í samþykktinni er bæði að finna skuldbindandi ákvæði og ákvæði sem fela í sér leiðbeiningar eða ábendingar um framkvæmd.

Það var orðið aðkallandi að Ísland fullgilti samþykktina. Hún hefur síðastliðinn áratug verið af og til á dagskrá samráðsnefndar félagsmálaráðuneytisins, áður velferðarráðuneytisins, og helstu samtaka á vinnumarkaði um málefni Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Um hana hefur einnig verið fjallað í sérstökum vinnuhópi samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytisins (áður innanríkisráðuneytisins).

Í ljós kom að íslenskt laga- og reglugerðarumhverfi var ekki í samræmi við þær skuldbindingar sem felast í samþykktinni. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið brást við með því að semja frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna alþjóðasamþykktar um vinnuskilyrði farmanna. Frumvarpið varð að lögum nr. 82 árið 2018 og var hindrunum fyrir fullgildingu samþykktarinnar þar með rutt úr vegi.

Þar sem Ísland hafði ekki fullgilt samþykktina gátu íslenskir hafnarríkiseftirlitsmenn ekki beitt fullnustuákvæðum hafnarríkiseftirlits hvað varðar þá þætti sem falla undir samþykktina ef þeir urðu varir við brot gegn ákvæðum hennar. Með fullgildingu Íslands er neti Parísarsamkomulagsins lokað gagnvart undirmálsskipum.

Ísland er aðili að Parísarsamkomulagi um hafnarríkiseftirlit ásamt nítján öðrum ríkjum. Tilgangur þess er að stemma stigu við siglingum skipa sem uppfylla ekki alþjóðakröfur um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti áhafna kaupskipa, atvinnuréttindi þeirra og mengun frá skipum.