Á nýafstöðnum samningafundi í London um stjórn makrílveiða náðist ekki samkomulag um skiptingu aflahlutdeildar fyrir næsta ár. Það sem strandaði á var ákvörðun um hlut Íslands af heildaraflanum en eitt strandríki gat ekki fallist á þann hlut Íslands sem önnur strandríki voru reiðubúin að samþykkja.
Frá þessu er skýrt á vef atvinnuvegaráðuneytisins.
„Það er mjög óheppilegt að strandríkin hafi ekki náð samkomulagi um ábyrga stjórn veiða úr þessum mikilvæga stofni. Það er líka mikið áhyggjuefni að þessi sömu ríki hafa enn ekki náð samkomulagi um stjórnun veiða á öðrum sameiginlegum stofnum uppsjávarfiska á Norðaustanverðu Atlantshafi. Ísland mun hér eftir sem hingað til leggja mikla áherslu á að samningar náist um ábyrga og sjálfbæra nýtingu þessara stofna sem grundvallist á vísindalegri ráðgjöf“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á vef ráðuneytisins.