Undirritaður hefur verið samningur um kaup Ísfells ehf. á rekstri Dímon línu ehf.  Samningurinn tekur til umboðs fyrir vörur, einkum til línuveiða, og til vörubirgða.

Flestir starfsmenn Dímon Línu munu halda áfram störfum hjá nýjum eigendum. Starfsemi Dímon línu verður til að byrja með áfram að hluta til í núverandi húsnæði að Héðinsgötu 1-3 en á næstu vikum er stefnt að flutningi hennar í húsnæði Ísfells að Óseyrarbraut 28 í Hafnarfirði.

Með þessum kaupum getur Ísfell boðið viðskiptavinum sínum enn betri þjónustu og fjölbreyttara vöruval en áður, segir í frétt frá fyrirtækinu.

Ísfell hóf starfsemi snemma árs 1992. Umsvif fyrirtækisins hafa aukist jafnt og þétt hérlendis og erlendis með innri vexti, kaupum á öðrum fyrirtækjum og sameiningum. Nú starfa  55 manns í sex  starfsstöðvum Ísfells á Íslandi og 35 manns til viðbótar í þremur starfsstöðvum á Nýfundnalandi og Nova Scotia í Kanada.

Rekstur Dímon línu má rekja til ársins 1994 og hefur fyrirtækið  verið leiðandi í sölu á línu, beitu og öðrum vörum til línuveiða. Arnór Stefánsson, stofnandi og framkvæmdastjóri félagsins, hefur á síðustu árum tekið þátt í uppbyggingu verksmiðju á eigin vegum til framleiðslu á ryðfríum línukrókum á Indlandi og hyggst einbeita sé að frekari vexti á því sviði á næstu árum.

Samkeppniseftirlitið fjallaði um viðskipti Ísfells og Dímon línu án athugasemda.