HB Grandi hefur selt ísfisktogarann Ottó N. Þorláksson RE 203 til Ísfélags Vestmannaeyja, að því er fram kemur í tilkynnnngu frá HB Granda .Söluverðið er 150 milljónir króna og verður það greitt við afhendingu sem fer fram eigi síðar en 31. maí næstkomandi.

Ottó N. Þorláksson var smíðaður árið 1981 í Garðabæ og hefur skipið reynst afburðar vel.