Ísfélag Vestmannaeyja hefur gert samning um kaup á skipi sem er í smíðum í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi. Skipið verður afhent tilbúið til veiða í byrjun næsta árs.
Skipið er 80 metra langt og 17 metra breitt og er afar vel búið til veiða á uppsjávarfiski s.s. loðnu, síld, makríl og kolmunna. Kælitankar skipsins eru 2.970 rúmmetrar þannig að burðargeta skipsins er mikil og styður vel við öfluga landvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og á Þórshöfn.
Í frétt frá Ísfélaginu segir að kaupin séu liður í endurnýjun á skipaflota Ísfélagsins og þáttur í hagræðingaraðgerðum þess ekki síst í kjölfar sífellt aukinnar skattlagningar stjórnvalda. Félaginu sé ætlað að greiða um tvo milljarða í veiðigjöld og tekjuskatt á þessu ári. Félaginu sé því nauðsynlegt að fækka skipum og auka hagræði á öllum sviðum rekstursins.
Gera má ráð fyrir að hið nýja skip leysi tvö af eldri skipum félagsins af hólmi, með tilheyrandi lækkun olíu- og launakostnaðar