Með nýju samkomulagi er Styrktarsjóður Isavia og Slysavarnafélagsins Landsbjargar endurvakinn eftir að hafa legið í dvala síðan í heimsfaraldri. Þetta kemur fram í tilkynningu.
„Sjóðurinn var stofnaður árið 2012 með það að markmiði að efla hópslysaviðbúnað í nágrenni flugvalla og fjölfarinna ferðmannastaða á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.
Öflugar björgunarsveitir skipti alla máli
„Við hjá Isavia metum mikils okkar góða samstarf við Landsbjörgu og viljum áfram leggja okkar að mörkum til að efla það góða starf sem björgunarsveitirnar vinna um allt land,“ er haft eftir Sveinbirni Indriðasyni, forstjóra Isavia. Ánægja sé hjá Isavian með að vera búin að endurvekja styrktarsjóðinn því það skipti alla máli að hafa öflugar björgunarsveitir til taks þegar hætta steðjar að.
Lykilatriði að stutt sé í aðstoð reynds björgunarfólks
„Það skiptir meginmáli að starf sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar eigi sér jafn öfluga bakhjarla og Isavia er og það er okkur mikið gleðiefni að Styrktarsjóðurinn skuli nú endurvakinn. Net björgunarsveita er þéttriðið um allt land og afar mikilvægt að tryggja það net, því þegar einhverskonar vá verður, er lykilatriði að stutt sé í aðstoð vel þjálfaðs og reynds björgunarfólks með réttan búnað,“ er síðan vitnað í Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar.