Innflutt hráefni til fiskvinnslu nam 81 þúsund tonnum árið 2010 og jókst í magni um 37 þúsund tonn frá fyrra ári eða um 84%. Verðmæti þessa innflutnings var 8,2 milljarðar króna sem er tæplega 2 milljarða króna hærri fjárhæð en árið 2009 á verðlagi hvors árs og 31% hærra á föstu verðlagi ársins 2010 miðað við verðvísitölur sjávarafurða.

Þetta kemur fram í nýútkomnu riti Hagstofu Íslands. Megnið af aukningunni milli ára stafar af löndun erlendra skipa á loðnu á síðasta ári sem nam 29 þúsund tonnum en var engin árið á undan. Minna var flutt inn af þorski, ufsa, steinbít, hlýra, síld og norsk-íslenskri síld en árið áður. Innflutningur jókst á loðnu, loðnuhrognum, kolmunna, makríl og rækju. Verðmæti innflutts hráefnis nam 10% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Nánari upplýsingar er að finna vef Hagstofu Íslands