Ingibjörg, nýtt björgunarskip Björgunarfélags Hornafjarðar, er komið til Reykjavíkur og liggur nú í Norðurbugt. Skipið var smíðað hjá KewTec í Finnlandi eins og þau fjögur nýju björgunarskip í allsherjar endurnýjun Landsbjargar sem nú þegar hafa verið afhent.

Að sögn Björns Gunnarssonar, verkefnisstjóra sjóbjörgunar hjá Landsbjörgu, verður reynt að sigla björgunarskipinu til Siglufjarðar í lok vikunnar eða byrjun næstu viku. Næstu daga verður gengið frá ýmsum búnaði í skipið og það upphafsskoðað og gengið frá öllum pappírum áður en því verður siglt austur.

Björgunarskipin Jóhann Briem, t.h., og Ingibjörg í Reykjavíkurhöfn. FF MYND/JÓN PÁLL
Björgunarskipin Jóhann Briem, t.h., og Ingibjörg í Reykjavíkurhöfn. FF MYND/JÓN PÁLL

Björgunarskip númer 6 í röðinni í endurnýjunarferlinu er nú í smíðum hjá KewTec. Það er skipið Gísli Jóns sem Björgunarfélag Ísafjarðar fær afhent væntanlega í byrjun nóvember. Þá hefur verið skrifað undir smíðasamninga á skipum númer 7 og 8 sem fara til Björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði og Björgunarsveitarinnar Blakks á Patreksfirði. Þau verða afhent vorið 2026 til Vopnafjarðar og 2028 til Patreksfjarðar.