„Fáir vita að IKEA er stærsti smásöluaðili á síld í Skandinavíu en það er staðreynd,“ sagði Teitur Gylfason, sölustjóri hjá Iceland Seafood, í erindi á Sjávarútvegsráðtefnunni er hann gaf stutt yfirlit um hvað verður um uppsjávarfiskinn frá Íslandi.
Frá þessu er greint í nýjustu Fiskifréttum sem komu út í dag. Megnið af uppsjávarafurðum Íslendinga er heilfrystur fiskur eða fryst flök sem fara í framhaldsvinnslu erlendis. Hér er um síld, makríl, loðnu og kolmunna að ræða. Erlendis er fiskurinn maríneraður, saltaður, reyktur og þurrkaður.
IKEA er með verslanir vítt og breitt um Norðurlöndin og selja margt annað en húsgögn og gjafavöru. Í hverri verslun er matsala og þar er meðal annars boðið upp á síld. Síldinni er sérpakkað í krukkur merktar IKEA eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Sjá nánar í nýjustu Fiskifréttum.