Iðnver hefur gert samning upp á annað hundrað milljónir króna við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum um sölu og þjónustu á vélasamstæðum frá Huber Technology. Mun samstæðan hreinsa allt frávatn frá uppsjávarhúsi, hvítfiskvinnslu og loðnubræðslu félagsins. Afkastagetan er um 400 rúmmetrar á klukkustund.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Aukin verðmætasköpun

Markmiðið með hreinsuninni er sagt vera að auka verðmætasköpun hjá VSV. Með því að bæta frárennslisbúnað sé hægt að nýta betur auðlindir félagsins. Með vélbúnaði frá Huber verði hægt að ná sem mestu af próteini úr frávatninu og endurnýta það í bræðslunni. Um sé að ræða verulegt magn sem annars færi til spillis.

Vélasamstæða frá Huber Technology sem VSV kaupir frá Iðnveri.
Vélasamstæða frá Huber Technology sem VSV kaupir frá Iðnveri.

Haft er eftir Pétri Blöndal, framkvæmdastjóra Iðnver, að nútíma krafa sé að fyrirtæki fjárfesti í aukinni sjálfbærni sem stuðli að aukinni verðmætasköpun. ,,Það er afar ánægjulegt að ná þessum stóra samningi við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum sem er leiðandi fyrirtæki í sjávarútvegi. VSV hefur ávallt lagt mikla áherslu á gæði afurða sinna sem eru seldir á mörkuðum víða um heim," er haft eftir Pétri.

Byltingarkenndur búnaður og margt spennandi í gangi

Þá segir frá því að Iðnver hafi nýverið gert samning við þýska fyrirtækið Huber Technology um að gerast umboðsaðili þess á Íslandi. Huber sérhæfi sig í nýsköpun og tækninýjungum fyrir skólp og iðnaðarskólp. Vörur fyrirtækisins sú nú í fyrsta sinn til sölu á Íslandi.

,,Við finnum strax fyrir miklum áhuga og eftirspurn frá íslenskum fyrirtækjum á vörum frá Huber. Það kemur raunar ekki á óvart enda er þetta byltingarkenndur tæknibúnaður og vörur sem fyrirtækið er að bjóða upp á í tengslum við skólp og allt sem því viðkemur. Það er margt spennandi i gangi hjá Iðnver um þessar mundir," segir framkvæmdastjóri Iðnvers.