Glæsilegt þrímastra seglskip blasti við sjónum þeirra sem áttu leið um Ægisgarð nýlega. Skipið heitir Statsraad Lehmkuhl og var sjósett í fyrsta sinn árið 1914. Það er í eigu Statsraad Lehmkuhl stofnunarinnar í Noregi og gegnir hlutverki skólaskips fyrir konunglega norska sjóherinn þessi misserin.
Heimahöfn Statsraad Lehmkuhl er Bergen í Noregi. Skipið var smíðað í Joh. C. Tecklenborg skipasmíðastöðinni í Geestemünde í Þýskalandi sem skólaskip fyrir samtök þýskra kaupskipaútgerða og hét þá Grossherzog Friedrich August. Það er 98 metrar að mestri lengd og er búið 22 seglum. Mesta hæð er 48 metrar. Ganghraðinn er 11 hnútar fyrir vélarafli en að hámarki 17 hnútar fyrir seglum. Í áhöfn eru að jafnaði 17 manns.

Bretar tóku Statsraad Lehmkuhl að herfangi eftir fyrri heimsstyrjöld en árið 1921 keypti fyrrverandi ráðherra norsku ríkisstjórnarinnar, Kristofer Lehmkuhl, skipið sem fékk þá nafn hans og hefur borið að mestu leyti síðan. Í seinni heimsstyrjöld gerðu Þjóðverjar það upptækt og sigldi það undir heitinu Westwärts árin 1940 1945. Árið 1978 var það fært Statsraad Lehmkuhl stofnuninni að gjöf.
Í aðalhlutverki í hægsjónvarpi
Árið 2019 var vélarkosti skipsins breytt úr dísilaflrás í tvinnaflrás af norska véla- og tæknifyrirtækinu Kongsberg. Það er með 370 kWst rafhlöðusamstæðu sem hlaðið er inn á og orkan nýtt þegar skipið siglir seglum þöndum. Tvinnaflrásin er nýtt til að knýja skrúfu skipsins þegar vindaflsins nýtur ekki við. Varaaflið er KRM6 dísilvél frá Bergen Engines. Árið 2021 var Statsraad Lehmkuhl í aðalhlutverki í hægsjónvarpi NRK þegar það sigldi fyrir seglum frá Nordkapp til Arendal með viðkomu í höfnum víðsvegar í Noregi. Útsendingin fór fram frá 6. júlí til 15. ágúst og er líklega í flokki með tíðindaminnstu sjónvarpsútsendingum allra tíma. Síðar í ágúst sama ár tók Statsraad Lehmkuhl þátt í One Ocean Expedition og sigldi þá hringinn í kringum jörðina útbúið sem hafrannsóknaskip. Safnað var veðurfars- og vatnafræðilegum gögnum ásamt sýnishornum af sjávarlífverum, örplasti, dýrasvifi, lífsýnum úr umhverfinu og koltvísýringi úr hafinu. Skipið hefur oft tekið þátt í Tall Ship Races, hámastrakeppninni, sem er siglingakeppni hámastra seglskipa sem haldin er árlega.