„Samherji átti fárra kosta völ en að leita til dómstóla, sem eru hinn hefðbundni vettvangur til úrlausna deilumála,“ segir í yfirlýsingu frá sjávarútvegsfyrirtækinu vegna málaferla þess í Bretlandi gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni sem gengur undir listamannsnafninu Odee.

Málflutningur var fyrir dómi í vikunni í málinu sem Samherji segist hafa höfða vegna þess að Oddur Eysteinn hafi villt á sér heimildir og notað til þess hugverk í eigu Samherja.

„Við slíkt er að sjálfsögðu ekki hægt að una og hefur ekkert með list eða tjáningarfrelsi að gera. Vörumerki Samherja hefur verið byggt upp á liðlega fjórum áratugum um allan heim og skylda félagsins er að verja lögbundið vörumerki félagsins,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Samherja. Fyrirtækið hafi engan áhuga haft á að höfða þetta gegn Oddi Eysteini „umfram það að fá hann til að leiðrétta vísvitandi brot sín og bauð honum að ljúka málinu utan dómstóla með því að afhenda Samherja lénið og gangast við því að endurtaka ekki brot sín. Oddur hefur kosið að hafna því og taka til varnar í málinu,“ segir á samherji.is.

Falskar fréttir í nafni Samherja

Verk Odds Eysteins Friðrikssonar, Odee.
Verk Odds Eysteins Friðrikssonar, Odee.

Málavextir frá sjónarhóli Samherja er raktir nánar í yfirlýsingunni á vefsíðu félagsins. „Í maí á síðasta ári setti Oddur Eysteinn upp heimasíðu sem var vistuð í Bretlandi, í nafni og með myndmerki Samherja og dreifði fölskum fréttum í nafni félagsins‏‏,“ segir meðal annars um þá. Misnotkun á vörumerki Samherja hafi náð til þriggja heimsálfa.

„Öllum má ljóst vera að þegar Oddur Eysteinn opnaði vefsíðu með léninu -samherji.co.uk- sem var eftirlíking af opinberri síðu Samherja, olli slíkt ruglingshættu bæði hjá almenningi og viðskiptavinum. Þá er rétt að greina frá því að í þessari misnotkun fólst ekki einungis listrænn tilgangur eins og höfundur heldur fram, því auk þess var reynt að hafa fé af Samherja með því að fela auglýsingastofu birtingu á auglýsingaefni af sama tagi gegn greiðslu frá Samherja,“ segir í yfirlýsingunni.

Styður tjáningarfrelsi listamanna

Samherji kveðst styðja stjórnarskrárvarið tjáningarfrelsi listamanna.

„En hér var um að ræða víðtækt alvarlegt brot sem ekki var hægt að réttlæta með vísunum til listrænnar tjáningar. Samherji hvetur til listrænna sköpunar og hefur haft það að samfélagslegu markmiði að styðja við listamenn í gegnum árin. Hvetur Samherji Odd Eysteinn til frekari verka en um leið að virða réttindi og störf annarra samborgara sinna samhliða listsköpun sinni,“ segir að endingu í yfirlýsingunni.

RÚV segir frá málarekstrinum ytra í frétt í dag þar sem rætt er við Odd Eystein.