Um 200 manns sóttu starfsmannafund Síldarvinnslunnar sem haldinn var í dag í Egilsbúð í Neskaupstað. Fundinn sóttu sjómenn og starfsmenn landvinnslu í Neskaupstað ásamt starfsmönnum Gullbergs ehf. á Seyðisfirði en í þeim hópi voru einnig skipverjar á Gullver NS. Þá sátu fundinn gestir frá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Fundurinn bar yfirskriftina Hvernig á að byggja upp heilbrigðan vinnustað ?

Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar setti fundinn og fjallaði um mikilvægi þess að starfsfólki liði vel á vinnustað og þar byggi það við öruggt og jákvætt umhverfi. Salóme Rut Harðardóttir, íþrótta- og heilsufræðingur,  gerði síðan grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sem hún gerði á lífsánægju og starfsumhverfi sjómanna en rannsóknin hefur vakið verulega athygli og töluvert verið um hana fjallað í fjölmiðlum að undanförnu.

Þá flutti Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur, erindi um starfsanda og liðsheild og Edda Björgvins gerði mikilvægi jákvæðra samskipta og gleði á vinnustað góð skil. Í lokin fjallaði Hákon Ernuson, starfsmannastjóri Síldarvinnslunnar, um helstu áherslur í nýrri starfsmannastefnu fyrirtækisins.

Í lok fundar var brugðið sett saman hljómsveit sem spilaði og boðið upp á veitingar.

Sjá nánar frétt og myndir á vef SVN.