Landssamband smábátaeigenda (LS) greinir frá því að útgerðir 654 strandveiðibáta bíði nú með óþreyju eftir ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um hversu miklu verður bætt við áætlaðan afla þeirra í þorski.
Þar segir að samkvæmt reglugerð verða veiðar stöðvaðar þegar aflinn nær 10.000 tonnum. Nú hafa veiðarnar varað i 41 dag sem skilað hafa 7.642 tonnum, þar af 7.070 tonnum af þorski.
Að óbreyttu verður stöðvun veiða upp úr miðjum ágúst.
LS sendi sjávarútvegsráðherra erindi á fimmtudag þar sem hann er hvattur til að tilkynna hið fyrsta um viðbótarheimildir í þorski til strandveiða. Ráðherra hefur boðað tilkynningu varðandi strandveiðar í dag.
Það er ekki seinna vænna þar sem eindagi á að segja sig frá veiðum er 20. júlí.
LS gengur út frá því að allt það sem nú er til ráðstöfunar úr 5,3% pottinum komi óskert til strandveiða. Um mánaðarmótin maí - júlí, voru það 335 tonn. Af því hefur 140 tonnum verið úthlutað til að tryggja línuívilnun til loka fiskveiðiársins. Í lok júní tilkynnti Fiskistofa um niðurstöðu tilboðsmarkaðar í skiptum á makríl fyrir þorsk. Alls fengust þar 976 tonn.
„Það liggur því fyrir að mati LS að ráðherra geti því aukið veiðiheimildir til strandveiða um 1.170 tonn,“ segir í umfjöllun LS.