Arnarlax á Bíldudal náði þeim áfanga í síðustu viku að framleiða yfir eitt hundrað þúsund tonn af laxi frá stofnun fyrirtækisins árið 2010.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arnarlaxi þar sem bent er á að þessi eitt hundrað þúsund tonn séu ígildi 500 milljón máltíða.

Stefna á áframhaldandi stækkun

„Fyrirtækið hefur vaxið hratt og aukið framleiðslugetu sína á sama tíma að viðhalda gæðum og lágmarka umhverfisáhrif framleiðslunnar. Aukin framleiðslugeta fyrirtæksins hefur verið studd á markvissan hátt með fjárfestingum í innviðum, tækni og nýsköpun til að tryggja ábyrgar og sjálfbærar framleiðsluaðferðir,“ segir í tilkynningunni.

Áfram segir að framleiðslan hafi aukist ár frá ári. Hún hafi verið 6.100 tonn árið 2016 og farið hæst í 17.800 tonn í fyrra. Meðaltalið sé um 11.100 tonn á hverju ári. Framleiðslumöguleikar Arnarlax eru sagðir vera allt að 26.000 tonn á ári og að fyrirtækið stefni á áframhaldandi stækkun sem byggi á sjálfbærum framleiðsluaðferðum.

Hvert einasta tonn staðfesti framtíðarsýn

„Þetta er mikilvægur og ánægjulegur áfangi í 15 ára vegferð fyrirtækisins. Þessi árangur er afrakstur mikillar vinnu starfsfólks okkar í öllum deildum fyrirtækisins. Hvert einasta tonn staðfestir framtíðarsýn og skuldbindingu okkar við samfélagið og umhverfið. Við erum ekki aðeins að horfa á magn framleiðslunnar, heldur einnig hvernig, þannig að aðferðir okkar stuðli að lágmarks áhrifum á umhverfið,“ er haft eftir Birni Hembre, forstjóra Arnarlax.

Í tilkynningunni segir einnig að markmið Arnarlax hafi ávallt verið að stuðla að atvinnuuppbyggingu á sunnanverðum Vestfjörðum. Samhliða aukinni stækkun fyrirtækisins hafi starfsfólki, verktökum, þjónustuaðilum og afleiddum störfum fjölgað. Meðalfjöldi starfsfólks hjá Arnarlaxi sé 184. Um 70 prósent þeirra búi í sameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar.

Fjárfest í rannsóknum og þróun

„Mikil þekkingaruppbygging hefur einnig átt sér stað á svæðinu en það hefur verið rík áhersla að ráða sérfræðinga til starfa á öllum sviðum fyrirtækisins. Sérfræðiþekking starfsmanna vegur þungt í að viðhalda stöðugri framleiðslu og vexti sem felst í því að innleiða og fylgja eftir mótvægisaðgerðum til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfi og vistkerfi sjávar. Til að tryggja gæði og framleiðni þá hefur fyrirtækið fjárfest í rannsóknum og þróun, innleitt nýstárlegar lausnir eins og Hybrid vinnubáta og fóðurpramma, landtenginu við fóðurpramma til að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif,“ segir í tilkynningunni.

Óvissa sé ekki góð fyrir neinn

Þá er haft eftir Birni forstjóra að laxeldi sé mikilvæg atvinnugrein á Vestfjörðum og jafnframt ein af mikilvægustu atvinnugreinum Íslands. Útflutningsverðmæti greinarinnar hafi verið um 40 milljarðar króna árið 2023. Það hafi verið 4,3 prósent af vöruútflutningi þjóðarinnar. Í stefni að þetta hlutfall verði um 5 prósent á þessu ári.

„Enn er rúm til vaxtar í greininni en til þess að hámarka möguleika laxeldis fyrir Ísland þarf að vera skýr laga rammi, samkeppnishæfir skattar og vilji stjórnvalda til að nýta þessa auðlind á sjálfbæran hátt. Óvissan sem greinin býr við er ekki góð fyrir neinn. Möguleikarnir eru miklir á Íslandi og útflutningstekjur af laxi geta orðið meiri en af þorskinum þegar fram líða stundir,“ er vitnað til Björns Hembre.