Hafinn er árlegur humarleiðangur Hafrannsóknastofnunar. Slíkur leiðangur hefur verið farinn óslitið síðan 1973.
Í frétt Hafrannsóknastofnunar segir að haldið verður á veiðislóð humars, en hún nær frá Lónsdjúpi út af Höfn í Hornafirði í austri til Jökuldjúps suður af Snæfellsjökli í vestri. Í ár verða humarholur myndaðar í fimmta sinn, en áður fyrr var ástand humarstofnsins kannað með trolli. Einnig verða háfsýni tekin til að fylgjast með ungviði humars.
Gert er ráð fyrir að leiðangurinn taki 10 daga, en myndatakan er háð góðu veðri.
Leiðangursstjóri er Jónas P. Jónasson.