Huginn VE 55, uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, strandaði í innsiglunni að Vestmannaeyjum um á fjórða tímanum í dag. Björgunarskipið Þór og Lóðsinn í Eyjum náðu fljótt að losa skipið.

Áhöfn björgunarskipsins Þórs í Vestmannaeyjum var á fjórða tímanum kölluð út á mesta forgangi þegar Huginn VE 55 tók niðri í innsiglingunni við Hörgárgarð gegnt Skansinum.

Skipið hafði misst vélarafl á leið inn innsiglinguna með þessum afleiðingum.

Auk Þórs var Lóðsinn í Eyjum í aðgerðum í dag.

Björgunarskipið Þór og Lóðsinn losuðu Huginn af strandstað. Myndir/Landsbjörg
Björgunarskipið Þór og Lóðsinn losuðu Huginn af strandstað. Myndir/Landsbjörg

Komið var taug aftur úr Huginn í Lóðsinn sem togaði í hann á meðan Þór lagðist með stefnið á síðu Hugins aftarlega til að ýta á hann til að snúa skipinu. Þessar aðgerðir gengu fljótt og vel og losnaði Huginn fljótlega. Lóðsinn dró svo skipið að bryggju.

Ekki er ljóst hvort skemmdir hafi orðið á skipinu. RÚV hafði það eftir lögreglunni í Vestmannaeyjum að vélarbilun hafi komið upp í skipinu og hafnaði í sandi í innsiglingunni og sat þar fast. Betur fór en á horfðist. Engar sælagnir voru þar sem akkeri skipsins fór út.

Miklar skemmdir urðu á neysluvatnslögninni til Vestmannaeyja í nóvember 2023 þegar akkeri Hugins VE festist í vatnslögninni.