Huginn VE kom með fyrstu loðnuna til Vestmannaeyja seint í gærkvöld. Aflinn er um 1.800 tonn og fer í bræðslu.

Frá þessu er sagt á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar en þá var Ísleifur enn að veiðum norður af Langanesi, kominn með um 1.300 tonn og átti að leggja af stað til löndunar í gærkvöldi.

Kap er á heimleið eftir að hafa lagt úr höfn á Akureyri um kvöldmatarleytið á miðvikudag úr viðgerðarstoppi. Skipið var dregið til hafnar nyrðra fyrr í vikunni þegar aðalvél þess bilaði. Vinnslustöðin bjó svo vel að eiga viðeigandi varahluti og því tók tiltölulega skamman tíma að gera við.

„Svo kom því miður í ljós að bilunarsögunni var þar með ekki lokið til fulls því Kap hafði ekki siglt lengi frá Akureyri þegar kom á daginn að eitthvað var enn athugavert við aðalvélina. Ákveðið var þá að sigla skipinu beint til Vestmannaeyja og kanna málið betur hér. Við komuna verður landað 800 tonnum af loðnu sem í Kap eru, aðalvélin yfirfarin á ný og siglt á miðin aftur að viðgerð lokinni – þegar líka yfirvofandi brælu linnir,“ segir í frétt Vinnslustöðvarinnar.