HS Orka og Grænafl á Siglufirði hafa samið um uppsetningu hleðslustöðva fyrir minni fiskiskip og vinnu að orkuskiptum.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að fyrirtækið Grænafl vinni að orkuskiptum í minni fiskiskipum. Hluti af því verkefni sé að koma upp hleðslustöðvum fyrir dagróðrabáta í höfnum landsins.

„HS Orka og Grænafl munu vinna saman að því og fyrsta hleðslustöðin verður sett upp í höfninni á Siglufirði. Styrkur fékkst frá Orkusjóði í það verkefni,“ segir í tilkynningunni.

Miklvægt að styðja við nýsköpun

„Við hjá HS Orku leggjum mikið upp úr sjálfbærni, til dæmis með rekstri Auðlindagarðsins, og tökum það verkefni að Ísland nái kolefnishlutleysi alvarlega. Við höfum fylgst með verkefnum Grænafls og sjáum spennandi tækifæri í orkuskiptum í sjávarútvegi, þar sem við getum útvíkkað starfsemi okkar þegar kemur að hleðslustöðvum. HS Orka telur mikilvægt að styðja við nýsköpun í þessum geira og skapa um leið nýjan markað,“ er haft eftir Friðriki Friðrikssyni, framkvæmdastjóra sölu- og þjónustusviðs HS Orku.

Bent er á að HS Orka hafi tekið virkan þátt í orkuskiptum með uppsetningu hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land í samstarfi við InstaVolt auk þess að bjóða fyrirtækjum og einstaklingum lausnir fyrir hleðslu rafbíla heima.

Framundan að breyta fyrstu bátunum

Þá segir að Grænafl leiði verkefni um orkuskipti í minni fiskiskipum í samstarfi við suðurkóresk fyrirtæki og stofnanir sem vinni saman undir regnhlíf Korean Maritime Institute.

„Framundan er að breyta fyrstu bátunum og setja í þá nýjan búnað svo þeir geti keyrt á rafmagni, ýmist að fullu eða hluta. Þannig verður til ný tækni og ný lausn fyrir minni skip sem munu draga úr olíunotkun landsins og vera þannig liður í vegferðinni að kolefnishlutleysi,“ segir í tilkynningunni þar sem framkvæmdastjóri Grænafls lýsir ánægju með aðkomu HS Orku að verkefninu.

Orkuskipti á fleygiferð

„Það er ljóst að orkuskipti eru á fleygiferð og það þarf að huga að uppbyggingu innviða í höfnum landsins. Að fá traust og reynslumikið fyrirtæki eins og HS Orku með okkur í það verkefni er mikils virði og gefur okkur færi á að stuðla að orkuskiptum minni fiskiskipa,“ er haft eftir Kolbeini Óttarssyni Proppé, framkvæmdastjóra Grænafls.