Alls 144 reglugerðir, þar af 85 á sviði sjávarútvegs- og fiskeldis og 59 á sviði sjávarútvegs- og landbúnaðar, hafa verið felldar niður til viðbótar við þær 1098 reglugerðir sem felldar voru brott í október síðastliðnum.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði reglugerð þess efnis í morgun. Breytingarnar eru liður í aðgerðaráætlun um einföldun regluverks sem Kristján Þór og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra áttu frumkvæði að.

„Með þessu erum við að stíga enn eitt skrefið í því að hreinsa til í regluverkinu á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs," segir Kristján Þór í tilkynningu frá ráðuneytinu . "Þetta er hagsmunamál fyrir allt samfélagið, enda er einfalt og skilvirkt eftirlit eitt helsta verkefni stjórnvalda til að tryggja sem best stöðugleika í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja til lengri tíma og búa þeim samkeppnishæft starfsumhverfi. Aðgerðaáætlun ráðuneytisins miðar vel en er hins vegar hvergi nærri lokið. Þannig mun ég síðar í þessum mánuði birta drög að frumvarpi til einföldunar regluverks og ráðgeri að mæla fyrir því á Alþingi síðar í vor.”