Hreinn hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir skatta samkvæmt hefðbundinni uppgjörsaðferð nam 61 milljarði króna á árinu 2013, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofnunnar . Miðað við árgreiðsluaðferð er hagnaðurinn hins vegar 49 milljarðar króna.

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2012 og 2013. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 30% í 26,5%, lækkaði í fiskveiðum úr 25% árið 2012 í 20,1% af tekjum árið 2013 og lækkaði í fiskvinnslu úr 17,2% í 17%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 18% árið 2013 samanborið við 21,5% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 49 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 23,1 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 22,4% hagnaður 2013 eða 61 milljarðar, samanborið við 17,5% hagnað árið 2012, enda gætir ekki beinna áhrifa af breytingum á gengi við mat á fjármagnskostnaði sé árgreiðsluaðferðin notuð.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2013 tæpir 530 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 380 milljarðar og eigið fé rúmir 149 milljarðar.