Um helgina var hörku makrílveiði austur af landinu. Beitir NK er að landa um 500 tonnum í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og Börkur NK kom til hafnar í morgun með álíka afla. Á undan þeim hafði Bjarni Ólafsson AK landað tæplega 600 tonnum til vinnslu, en meirihluti þess afla var síld, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
Makríllinn sem skipin koma með að landi er mjög góður, sterkari og átuminni en áður og vel gengur að vinna hann.
Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri á Beiti segir að í reynd hafi verið afar góð makrílveiði síðustu daga úti fyrir Austfjörðum. Þó sé veiðin misjöfn eftir því hvenær sólarhringsins togað er; það er minna að fá yfir daginn en góður afli í myrkrinu. Í síðustu veiðiferð tók Beitir þrjú hol og voru þau býsna misjöfn eftir því hvenær togað var. Í fyrsta holi fengust 150 tonn, 30 tonn í öðru og rúm 300 í því þriðja. Um var að ræða nánast hreinan makríl en síldarbátarnir eru einnig að fá góðan afla bæði austar og uppi á grunnum. Til dæmis hefur góður síldarafli fengist bæði í Reyðarfjarðar- og Norðfjarðardýpi.