Hönnun Herjólfs hins nýja hlýtur Shippax verðlaunin fyrir hönnun minni ferja. Í umsögn kemur fram að hönnunin skili sér í skipi sem auðvelt sé að stjórna við mjög erfiðar aðstæður gegn opnu hafi og í siglingu inn í grunna Landeyjahöfn þar sem búast megi við háum öldum og hröðum straumum.
Afhenda átti verðlaunin á ráðstefnu í apríl en verðlaunaafhendingin frestast fram í september vegna Covid-19.
Þeir sem hljóta hönnunarverðlaunin eru Jóhannes Jóhannesson hjá JJohannesson ApS ásamt skipasmíðastöðinni CRIST S.A. í Póllandi og Vegagerðinni sem eiganda Herjólfs. Shippax tímaritið sem veitir verðlaunin sérhæfir sig í umfjöllun um ferjur, skemmtiferðaskip og bílferja.
Reynst vel
Í frétt frá Vegagerðinni segir að mjög ánægjulegt sé að hönnun Herjólfs hljóti þessi verðlaun. Ferjan hafi reynst mjög vel í siglingum milli lands og Eyja. Einnig hafi hún reynst vel á milli Vestamannaeyja og Þorlákshafnar. Þótt hún hafi sérstaklega verið hönnuð til að sigla í Landeyjahöfn þá hefur hún reynst betra sjóskip á lengri leiðinni en gamli Herjólfur III.
Einnig er bent á það í umsögninni að Herjólfur muni sigla alfarið fyrir rafmagni milli Landeyjahafnar og Vestamannaeyja þótt lagt hafi verið upp með annað. Þetta sé fyrsta ferjan sem siglir með 3MWh rafhlöðum fyrir opnu hafi en hingað til hafi sú aðferðafræði verið notuð á styttri leiðum með mun rólegra sjólagi en Íslendingar eiga að venjast. Einnig er það auðvitað talin kostur að raforkan á Íslandi er græn orka.