Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík, var í hópi sex einstaklingar sem hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2024. Verðlaunin voru veitt í gær við hátíðlega athöfn á Grand Hótel að viðstöddum forseta Íslands. Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum auk þess sem veitt voru sérstök hvatningarverðlaun en þetta er í fimmtánda sinn sem Stjórnunarverðlaunin eru afhent.
Pétur segir verðlaunin vera mikinn heiður og hitta beint í hjartastað, sérstaklega á þessum tíma þar sem aðstæður í Grindavík hafa verið erfiðar fyrir fyrirtækið og starfsfólkið okkar.
Handhafar Stjórnunarverðlauna Stjórnvísi 2024 eru eftirtaldir: Í flokki yfirstjórnenda Pétur Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf, í flokki millistjórnenda þau Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia og Sigurður Böðvarsson framkvæmdastjóri lækninga og sjúkrasviðs hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og í flokki frumkvöðla stofnendur Oculis þeir Einar Stefánsson prófessor í augnlækningum og Þorsteinn Loftsson prófessor í lyfjafræði. Auk þess voru veitt sérstök hvatningarverðlaun, þau hlaut Joanna Dominiczak, fagstjóri íslenskunáms og erlends samstarfs hjá Mímir símenntun.
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru árlega veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Yfirlýst markmið verðlaunanna er að stuðla að aukinni fagmennsku á sviði stjórnunar á Íslandi. Einnig er þeim ætlað að vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og örva umræðu um faglega stjórnun.
Í dómnefnd sátu:
Borghildur Erlingsdóttir, formaður dómnefndar og forstjóri Hugverkastofunnar, Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Katrín S. Óladóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hagvangs, Margrét Guðmundsdóttir, fyrrverandi forstjóri Icepharma og stjórnarkona, Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Justical og Þröstur Olaf Sigurjónsson, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.