Launagreiðslur Vinnslustöðvarinnar  og íslenskra dótturfélaga drógust saman um 20 prósent á milli áranna 2024 og 2023. Þetta kemur fram í færslu á vef fyrirtækisins.

„Heildarfjárhæð greiddra launa nam tæplega 5,3 milljörðum króna árið 2024 en voru tæplega 6,6 milljarðar króna árið 2023. Mismunur launagreiðslna er því 1,3 milljarðar króna.  Stærsta, og í raun eina, skýring þessa mismunar er loðnubrestur ársins 2024. Þess ber að geta að laun starfsmanna í landi hækkuðu á síðasta ári í kjölfar kjarasamninga, sem þýðir í raun að munurinn er meiri,“ segir á vsv.is.

Þá segir að ef litið sé til skatta, það er að segja staðgreiðsluskatta og launatengdra gjalda, þá dragist skatttekjur ríkis og sveitarfélaga saman um 630 milljónir króna.

„Aflahlutdeild Vinnslustöðvarinnar í loðnu er 12,33%. Með einfaldri nálgun, og að þeirri forsendu gefinni að laun annarra uppsjávarfyrirtækja séu svipuð við veiðar og vinnslu loðnu, má segja að launþegar verði af tæplega 11 milljarða heildar launatekjum og ríki og sveitafélög verði af liðlega 5 milljarða skatttekjum.  Að teknu tilliti mótframlaga í lífeyrissjóði er heildartap ríkis, sveitarfélaga og launþega um 11,6 milljarðar króna,“ segir í færslunni.

Yfirlit yfir launagreiðslur Vinnslustöðvarinnar og dótturfélaga á Íslandi í milljónum króna. Neðsta línan sýnir yfirlit um tekjutap starfsmanna, ríkis og sveitarfélaga af loðnuveiðum ef rekstur þeirra er með svipuðum hætti og Vinnslustöðvarinnar og dótturfélaga. Mynd/VSV