Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur sótt um leyfi til Skipulagsstofnunar um útvíkkun á 2.000 tonna þorskeldisleyfi í Ísafjarðardjúpi til framleiðslu á laxi og regnbogasilungi. Samkvæmt umsókninni er óskað eftir leyfi til eldis á samtals 7.000 tonnum af fiski, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins.

Hraðfrystihúsið-Gunnvör hefur staðið að uppbyggingu fiskeldis á starfssvæði sínu í Ísafjarðardjúpi allt frá árinu 2002. Í dag er fyrirtækið með sjókvíaeldi í Álftafirði og Seyðisfirði og eina tilraunakví í Skötufirði ásamt seiðaeldisstöð á Nauteyri í Ísafirði. Í Súðavík er miðstöð sjókvíaeldisstarfseminnar með sláturhúsi, fóðurgeymslu og þjónustuaðstöðu á hafnarsvæðinu. Þar er einnig heimahöfn þjónustubáta starfseminnar sem eru sérhæfðir fyrir flutning á lifandi fiski, fóðrun og veiða til áframeldis á þorski.

,,Laxeldi hefur gengið vel í nágrannalöndunum og verið arðsamt. Sjókvíaeldi á þorski og laxfiskum er í grundvallaratriðum eins, aðstæður til eldisins með hlýnandi veðurfari undanfarna tvo áratugi hafa einnig styrkt það eldisform,“ er haft eftir Einari Val Kristjánssyni, framkvæmdastjóra HG.

Verði umsókn HG samþykkt er ljóst að ný störf skapast á Vestfjörðum. ,, Oft reikna menn með að um 15 bein störf skapist við hver 1.000 tonn sem framleidd eru og á þá eftir að telja afleidd störf því til viðbótar. Því gæti veruleg aukning í fiskeldi á svæðinu fljótt skapað tugi nýrra starfa eins og reyndin virðist ætla að verða á suðurfjörðum Vestfjarða. Okkar eigin reynsla af þorskeldi staðfestir einnig þessa sýn um atvinnusköpun,“ segir Einar Valur Kristjánsson á vef HG.