Útflutningsverðmæti saltaðra grásleppuhrogna og grásleppukavíars á fyrri helmingi ársins er aðeins 44% af því sem það var á sama tíma í fyrra. Verðmætið nú var samanlagt 518 milljónir, þar af tveir þriðju söltuð hrogn, að því er kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.

Samdrátturinn kemur bæði fram í magni og lægra verði. Mest er verðlækkunin í söltuðum hrognunum 43% og útflutt magn af kavíar minnkar um 40% á milli ára.

Algengt fob-verð fyrir tunnu af grásleppuhrognum nú var 90 þús. á móti 184 þús. í fyrra.

Hér er um mikið áhyggjuefni að ræða, þar sem hjá mörgum smábátaútgerðum eru tekjur af grásleppuveiðum meginhluti innkomunnar. Ástæður þessara miklu sveiflna í verði og magni má rekja til of mikils framboðs. Markaðurinn er viðkvæmur og hefur ekki vaxið í takt við aukna heildarveiði.

Heildarútflutningsverðmæði saltaðra grásleppuhrogna og kavíars á síðasta ári voru 2,3 milljarðar.

Ljósið í myrkrinu fyrir grásleppukarla er að markaður fyrir grásleppuna er góður og hefur verð á þeim markaði hækkað milli ára, segir ennfremur á vef LS.