Norðmenn halda árlega heimsmeistaramót í veiðum á þorski á sjóstöng. Mótið fer fram í Svolvær í Norður-Noregi. Í ár tóku 655 keppendur þátt frá níu löndum.

Um er að ræða veiðar á vertíðarþorskinum norska, „skreifiske“. Keppt er í því hver veiðir mest keppnisdaginn og hver kemur með þyngsta fiskinn að landi.

Sigurvegarinn í ár heitir Kjetil Bjørdal og veiddi hann 28,3 kílóa þorsk. Hann hefur keppt á mótinu í 10 ár og hingað til aðeins náð að krækja í 13 til 14 kílóa fisk. Hann veiddi alls um 370 kíló yfir daginn.