Efnt var til verðlaunahátíðar í London í febrúar síðastliðnum sem bar heitið „National Fish and Chips Awards 2025”, eða Landsmótið í fiski og frönskum 2025. Á hátíðinni komu saman fulltrúar úr „fish and chips” iðnaðinum í Bretlandi og verðlaunuðu þá sem þykja hafa skarað fram úr við framleiðslu á þessum þjóðarrétti Breta. Sagt er frá þessu á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Það má svo sannarlega kalla fisk og franskar þjóðarrétt Breta því þar í landi má finna um 10.500 veitingastaði sem bjóða upp á réttinn. Það þykir tilhlýðilegt að meta gæðin á réttinum sem veitingastaðirnir bjóða upp á og má hiklaust tala um að þar sé um nokkurs konar heimsmeistaramót að ræða og verðlaunin sem sigurvegararnir fá séu hálfgerð óskarsverðlaun í þessum geira.

Á verðlaunahátíðinni í febrúar voru veitt verðlaun í þrettán flokkum en stærsti flokkurinn bar heitið „Takeaway of the Year.” Í þeim flokki var sigurvegarinn veitingastaðurinn Yarm Road Fish and Chips í Darlington í norðaustur Englandi. Í öðru sæti var veitingastaður í Largs í Skotlandi og í þriðja sæti veitingastaður í Cornwall í Englandi. Fulltrúar þessara þriggja veitingastaða fengu í verðlaun ferð til Íslands enda nota veitingastaðirnir fisk frá Íslandi í ríkum mæli og er þessi markaður í Bretlandi afar mikilvægur fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki.

Heimsóttu Neskaupstað

Fulltrúar þriggja efstu fyrirtækjanna í flokknum „Takeaway of the Year” heimsóttu Ísland í síðustu viku og komu meðal annars til Neskaupstaðar um sjómannadagshelgina. Með í för voru blaðamenn frá þremur öflugum breskum fjölmiðlum eins og til dæmis Financial Times. Ferðin var á vegum íslenska markaðsverkefnisins „Seafood from Iceland” og annaðist Íslandsstofa skipulag heimsóknarinnar. Hópurinn kom til Neskaupstaðar um sjómannadagshelgina og fékk að upplifa sjómannadagshátíðarhöld og bragða á dýrindis fiskréttum í Beituskúrnum. Fulltrúar Síldarvinnslunnar tóku á móti hópnum og buðu honum meðal annars í hópsiglingu á frystitogaranum Blængi NK.

Hópurinn var afar ánægður með Íslandsheimsóknina og töluðu bæði verðlaunahafarnir og blaðamennirnir um Íslandsheimsóknina sem ævintýraferð. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Graeme William Burrell, eiganda Yarm Road Fish and Chips í Darlington sem var eins og fyrr segir sigurvegari í umræddri keppni og þar með einskonar heimsmeistari í gerð þessa þjóðarréttar Breta. Greame William Burrell sagði eftirfarandi þegar hann var spurður um Íslandsheimsóknina.

Graeme William Burrell, sigurvegari í Takeaway of the Year í National Fish and Chips Awards 2025. Mynd/Smári Geirsson
Graeme William Burrell, sigurvegari í Takeaway of the Year í National Fish and Chips Awards 2025. Mynd/Smári Geirsson

Fiskurinn af Blængi tryggir gæðin

„Það er stórkostlegt að fá tækifæri til að heimsækja Ísland og kynnast örlítið landi og þjóð enda er íslenskur fiskur notaður í ríkum mæli í „fish and chips” í Bretlandi. Veitingastaðurinn okkar í Darlington er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfræktur í átta ár og gengið vel. Ástæða velgengninnar er fyrst og fremst sú að við leggjum áherslu á gæði. Við notum mest fisk frá frystitogaranum Blængi NK og það er sannkallaður gæðafiskur. Ég á stundum kost á að fá ódýrara hráefni en staðreyndin er einfaldlega sú fiskurinn frá Blængi tryggir gæðin og því kaupi ég hann. Það var upplifun fyrir mig að fá að koma um borð í Blæng og fá tækifæri til að sigla með honum. Blængur er ekki nýtt skip en hann kemur með algeran gæðafisk að landi og það er það sem skiptir öllu máli. Það eru þessi gæði sem gerðu það að verkum að við unnum keppnina „Takeaway of the Year.” Þessi Íslandsheimsókn verður ógleymanleg fyrir mig,” sagði Graeme William Burrell að lokum.