Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur lagt fram drög til breytinga á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar. Breytingarnar fela m.a. í sér að heimild til endurvigtunar afla fellur niður.
Drögin hafa verið unnin í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Í þeim er gert ráð fyrir verulegum breytingum á framkvæmd vigtunar sjávarafla. Má þar helst nefna að heimild til endurvigtunar fellur niður, dagróðrabátar landi afla á 4% fastri ísprósentu, útilegubátar geri samning við Fiskistofu um nettóþyngd í kari, hitastigsmælingar, álagningu stjórnsýslusekta, hertar reglur um afladagbók og fl.

Ráðuneytið hefur óskað að umsagnir berist því eigi síðar en 15. september nk. Unnt er að senda umsagnir bréfleiðis á netfangið [email protected].

Hér má skoða nánar hvað felst í frumvarpinu.