Formlega var gengið frá kaupum hóps fjárfesta á öllu hlutafé í Norðanfiski ehf. á Akranesi af Brim hf.
Skrifað var undir kaupsamning milli Brim hf. og hóp fjárfesta í lok maí á þessu ári. Hann var undirritaður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun, en búið er að uppfylla alla fyrirvara og var því formlega gengið frá viðskiptunum í dag.
Norðanfiskur ehf. hefur starfsstöð sína við Vesturgötu 5 á Akranesi og eru starfsmenn um þrjátíu talsins. Norðanfiskur sérhæfir sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á sjávarfangi til veitingahúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu neytendapakkninga í verslunum um allt land.
Kaupandi fyrirtækisins er nýtt eignarhaldsfélag í eigu tíu aðila sem allir eiga rætur á Akranesi auk framkvæmdastjóra Norðanfisks, Sigurjóns Gísla Jónssonar, sem áfram mun stýra fyrirtækinu. Formaður stjórnar verður Inga Ósk Jónsdóttir en hún og eiginmaður hennar Gísli Runólfsson eru stærstu hluthafar í eignarhaldsfélaginu sem kaupir. Auk framangreindra hluthafa koma að nýju eignarhaldsfélagi: Bifreiðastöð ÞÞÞ, Eignarhaldsfélag VGJ í eigu hjónanna Eiríks Vignissonar og Ólafar Ólafsdóttur, hjónin Karen Jónsdóttir og Kristján Baldvinsson, Gestur Breiðfjörð Gestsson auk fjögurra jafnaldra úr árgangi 1971, þeirrra Sævars Freys Þráinssonar, Harðar Svavarssonar, Jóns G Ottóssonar og HH verktaks sem er í eigu Hannesar Birgissonar og Hjartar Lúðvíkssonar.
Fram kom við undirritun samningsins að ráðgjafar í söluferlinu hafi verið Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, KPMG og Örn Gunnarsson hjá Lex lögmannsstofu. Íslensk verðbréf var auk þess ráðgjafi og stýrði söluferlinu fyrir hönd Brims.