Ísfélag hf. hefur selt Heimaey VE til norska félagsins Andrea L AS. Skipið hélt í síðasta sinn úr heimahöfn í Eyjum í gærkvöld. Áfangastaðurinn er Maloy en þar verður skipið afhent norskum kaupendum í næstu viku.
Fiskifréttir fjölluðu um kaup Ísfélagsins á Pathway fyrir réttu ári.
Heimaey var smíðuð fyrir Ísfélagið og var afhent félaginu árið 2012. Skipið var smíðað í skipasmíðastöðinni Asmar í Chile. Vefmiðillinn www.eyjafrettir.is hefur eftir Eyþóri Harðarsyni, útgerðastjóra Ísfélagsins að skipið hafi reynst vel á allan hátt þau 13 ár sem það hefur verið gert út.
Hann segir aðspurður að áhöfn Heimaeyjar muni færast yfir á nýtt skip félagsins, uppsjávarskipið Pathway sem verður afhent í lok maí í Skagen í Danmörku. Stefnt að því að koma nýja skipinu heim – sem mun fá nafnið Heimaey – fyrir sjómannadag.
Í mars síðastliðnum landaði Pathway kolmunna í Vestmannaeyjum. Hér er frétt Fiskifrétta frá þeim tíma.
