Heildarafli íslenska flotans á fyrstu 6 mánuðum fiskveiðiársins 2015/2016, frá 1. september 2015 til loka febrúar 2016, nam tæpum 472 þúsund tonnum upp úr sjó. Til samanburðar var aflinn á sama tímabili í fyrra rúm 648 þúsund tonn, að því er fram kemur í frétt á vef Fiskistofu .
Þetta er samdráttur í heildarafla sem nemur um 27,2% eða rúmum 176 þúsund tonnum. Þetta skýrist að mestu af minni síldar- og loðnuafla miðað við sama tíma í fyrra.
Botnfiskur
Á fyrstu 6 mánuðum yfirstandandi fiskveiðiárs veiddu íslensk skip um 17 þúsund tonnum meira af þorski (13,4%) og um 3,5 þúsund tonnum meira af ýsu (17,8%) en á sama tímabili á fyrra ári. Heildaraflinn í botnfiski er um 18,5 þúsund tonnum meiri (8,5%) en á fyrra ári.
Uppsjávarfiskur
Borið saman við sama tímabil á síðasta fiskveiðiári er nú mikill samdráttur í uppsjávarfiski. Heildaraflinn fer milli ára úr rúmum 423 þúsund tonnum í rúm 227 þúsund tonn og dregst saman um 46,3%.
Hryggleysingjar og krabbadýr
Helstu tíðindi af afla í hryggleysingjum og krabbadýrum borið saman við sama tímabil fyrra árs er að aflinn eykst um rúmt eitt þúsund tonn, þ.e. frá rúmum 3 þúsund tonnum í fyrra upp í rúm 4 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Er þessi aukning mest vegna aukinnar veiði í rækju (10%), hörpudiski (138%) og sæbjúgum (138%).