„Í mínum huga er alveg ljóst að ef við hefðum verið í Evrópusambandinu undanfarin ár hefði þjóðin tapað milljörðum króna. Í ljósi þess hvernig staðið var að úthlutun makrílkvóta hefði ESB komið í veg fyrir makrílveiðar Íslendinga í sumar. Kvóti okkar hefði aðeins orðið brot af því sem við veiddum þó svo að öll veiðin hafi verið í okkar lögsögu,” sagði Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands í setningarræðu sinni á þingi sambandsins í dag.
Sævar sagði að Sjómannasambandið hefði hingað til lagst gegn því að Ísland gengi í Evrópusambandið.
„Helstu rök okkar eru þau að sjávarútvegstefna þess er ótrúverðug og hefur í gegnum tíðina skapað fleiri vandamál en hún hefur leyst. Eins óttast ég mjög að aðkoma okkar að veiðum úr deilistofnum verði úr sögunni verði að inngöngu í ESB,” sagði Sævar Gunnarsson.