Síðastliðinn föstudag voru samningar um smíði þriggja nýrra ísfisktogara undirritaðir á skrifstofu HB Granda. Samningarnir hljóða upp á 43.950.000 evrur eða um 6,8 milljarða króna samtals. Áætlað er að fyrsta skipið verði afhent í maí 2016, það næsta síðla árs 2016 og það þriðja vorið 2017.

Nýju skipin munu leysa þrjá togara sem nú eru í rekstri, Ásbjörn RE, Otto N. Þorláksson RE og Sturlaug H. Böðvarsson AK, af hólmi. Með nýju skipunum eykst hagkvæmni í rekstri, þau munu eyða minni olíu, aflameðferð og nýting verður betri, rekstraröryggi eykst og viðhaldskostnaður mun lækka.

Það er skipasmíðastöðin Celiktrans Deniz Insaat Ltd. Sti., Tuzla, Tyrklandi sem mun annast smíði togaranna en fyrir er stöðin að smíða tvö uppsjávarskip fyrir HB Granda.

Hönnun skipanna er í höndum Nautic ehf., Lágmúla 5, Reykjavík.

Teikning af nýju ísfisktogurum HB Granda
Teikning af nýju ísfisktogurum HB Granda
© Aðsend mynd (AÐSEND)