HB Grandi hefur gert samning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Ögurvík. Seljandi hlutafjárins er Brim hf., sem einnig er stærsti hluthafi HB Granda.

Kaupverðið er um 12,3 milljarðar króna, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu eða 95 milljónir evra.

Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar HB Granda hf. og hluthafafundar félagsins. Þá eru viðskiptin einnig háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Kaupin verða fjármögnuð með eigin fé og lánum.

Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að nú liggur fyrir vilji stjórnar HB Granda til að skoða sölu félagins á frystitogara sem nú er í smíðum á Spáni.