HB Granda hefur keypt allt hlutafé í framleiðslufyrirtækinu Norðanfiski ehf. á Akranesi en fyrir átti HB Grandi 23,8% hlut í fyrirtækinu. Fyrirtækið var stofnað á Akureyri árið 2001 af Útgerðarfélagi Akureyringa og Kjarnafæði og framan af var starfsemin öll fyrir norðan.
Við sameiningu við Íslenskt – franskt eldhús, sem var í eigu Haraldar Böðvarssonar hf., fluttist öll starfsemi til Akraness árið 2003.
Að sögn Péturs Þorleifssonar, framkvæmdastjóra Norðanfisks, hefur fyrirtækið sérhæft sig á framhaldsvinnslu á sjávarafurðum sem ýmist eru í stórpakkningum eða neytendaumbúðum.
"Við vinnum aðallega afurðir fyrir innanlandsmarkaðinn og okkar viðskiptavinir eru verslanir, stóreldhús, s.s. mötuneyti skóla, leikskóla og vinnustaða, og svo hótel og veitingastaðir. Við erum mikið í að reykja og grafa lax. Svo er mikið um framleiðslu á brauðuðum fiskréttum sem aðeins þarf að hita upp og það sparar verulegan tíma við matreiðsluna,“ segir Pétur
Nú starfa 28 manns hjá Norðanfiski og er það svipaður starfsmannafjöldi og verið hefur undanfarin ár. Þrátt fyrir það hefur fyrirtækið vaxið með aukinni tæknivæðingu í vinnslunni. Mikil áhersla er lögð á vöruþróun en vörulisti Norðanfisks telur nú um 300 rétti og afurðir. Velta fyrirtækisins var 1.260 milljónir króna á árinu 2013. Sjá nánar á heimasíðu HB Granda .