Síldarvinnsluskipin þrjú, Börkur NK, Barði NK og Beitir NK, verða væntanlega komin í Smuguna síðar í dag.
Síldarvinnslan greinir fá á vef sínum.
Skipin þrjú sigldu í gær af stað til makrílveiða og munu verða í veiðisamstarfi við Vilhelm Þorsteinsson EA og Margréti EA. Vilhelm er þegar kominn í Smuguna og fleiri skip eru á leiðinni til veiða.
Síldarvinnslan segir að áformað hafi verið að skipin sigldu til makrílveiða síðstliðinn fimmtudag en brottför var frestað þangað til í gær.
Venus á landleið
„Að sögn Grétars Arnar Sigfinnssonar, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, er heldur lítið að frétta af veiði en þó mun Venus vera á landleið,“ segir á vef Síldarvinnslunnar.
„Grétar minnir á að veiði hafi byrjað rólega í fyrra en síðan hafi ræst úr henni. Þá segir hann að mestu máli skipti að nægilega mikið veiðist til að halda vinnslunni gangandi.
Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er allt klárt til að taka á móti makríl til vinnslu og þar eru menn sannfærðir um að vertíðin verði góð.“