Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um aflamark íslensku sumargotssíldarinnar fyrir komandi fiskveiðiár hækkar um 27 prósent og er 103.367 tonn.

„Ástæðan er sú að stórir árgangar frá 2017-2019 eru áberandi í veiðistofninum. Gert er ráð fyrir að ráðgjöf muni lækka á næstu árum þegar yngri árgangar bætast við veiðistofninn en þeir eru metnir talsvert minni. Óvissa er umtalsverð í stofnmatinu og mikils ósamræmis gætir í vísitölum milli áranna 2024 og 2025,“ segir í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar.

Dálítil hækkun í ýsu

Þá segir að upphafsaflamark fyrir næstkomandi loðnuvertíð samkvæmt aflareglu strandríkja sé 46.384 tonn. Þessi ráðgjöf verði uppfærð áður en veiðar hefjast að lokinni haustmælingu.

Samkvæmt nýuppfærðri aflareglu verði aflamark ýsu 78.918 tonn sem er 3% hækkun á ráðgjöf frá yfirstandandi fiskveiðiári. „Stærð viðmiðunarstofns er metin við sitt hæsta gildi. Líkur eru á því að stærð viðmiðunarstofnsmuni haldist há á næsta ári vegna góðrar nýliðunar áranna 2019 til 2021, en árgangarnir sem koma þar á eftir eru metnir litlir,“ segir Hafró.

Djúpkarfi ekki veiddur í fyrirsjáanlegri framtíð

Ráðgjöf fyrir ufsa samkvæmt uppfærðri aflareglu, lækkar um 11% frá yfirstandandi fiskveiðiári og er 59.510 tonn.

Tillögur um hámarksafla fiskveiðiárið 2025 2026, ásamt tillögum og aflamarki samkvæmt ákvörðun stjórnvalda fyrir fiskveiðiárið 2025 2025 (í tonnum).
Tillögur um hámarksafla fiskveiðiárið 2025 2026, ásamt tillögum og aflamarki samkvæmt ákvörðun stjórnvalda fyrir fiskveiðiárið 2025 2025 (í tonnum).

Ráðgjöf fyrir gullkarfa er 41.911 tonn eða 12% lægri en á yfirstandandi fiskveiðiári. „Nýliðun gullkarfa hefur verið slök undanfarinn áratug og af þeim sökum hefur hrygningarstofninnfarið minnkandi. Fyrirséð er að sú þróun haldi áfram og á komandi árum þurfi að draga verulega úr sókn,“ segir Hafró.

„Áfram er lagt er til að aflamark djúpkarfa verði 0 tonn þar sem hrygningarstofninn er metinn undir varúðarmörkum. Miðað við fyrirliggjandi gögn er ekki búist að stofninn fari upp fyrir varúðarmörk í fyrirsjáanlegri framtíð þar sem nýliðun í stofninn hefur verið metin mjög lág um nokkurt skeið.“

Þá hækkar ráðgjöf fyrir grálúðu um 17% frá fyrra ári og er nú 20 992 tonn. „Ráðlagt aflamark er hærra vegna aukningar á heildarstofnstærð. Útlit er fyrir að stofninn fari vaxandi á næstu árum vegna góðrar nýliðunar,“ segir Hafró.